www.laser-laekning.is
Um Laser-lækningu Spurningar og svör Persónuleg ráðgjof
Um Laser-lækninguLitabreytingar og húðflúr (fyrir og eftir myndir)

Spurningar og svör


Fyrir og efti : Litbreyting og húðflúrFyrir og efti : Æðaslit, ör og valbráFyrir og efti : Háreyðing

  

Fyrir hverja er meðferð með PhotoDerm®
Vasculight ætluð?

  Flest allir, þar með talin börn, þola meðferð
með PhotoDerm® Vasculight™. Meðferðin
er einstaklingsbundin og ræðst af þörfum hvers
sjúklings. Leita skal læknis eftir nánari ráðgjöf.

Hvernig er meðferð háttað?

  Meðferðin byggir á leiftri af sterku ljósi, líkt
og myndavélaflassi. Ljósið smýgur inn í húðina
til misstórra æða, hára og litafruma.

Áhrifin sem sjúklingurinn finnur fyrir eru mildur
stingur, svipaður og að teygju sé smellt á hörundið.

Líkaminn losar sig við það sem hann þarf ekki
lengur á að halda. Æðar, húðlitarefni og hár eyðast.

Hvað þarf að mæta oft til meðferðar?

  Það getur verið misjafnt hve oft þarf að mæta
til meðferðar, allt eftir því hvers eðlis meðferð-
in er og hve alvarlegt ástand sjúklingsins er.
Stundum nægir eitt skipti en í öðrum tilvikum
þarf að meðhöndla 8– 12 sinnum.
Í einstaka tilfellum oftar.

Hefur meðferð áhrif á daglegt líf sjúklings?

  Sjúklingum ætti að vera kleift að mæta til
vinnu sama dag og ná fljótlega upp fyrri virkni.
Forðast skal heit böð og líkamlega áreynslu
næstu 4– 6 daga eftir meðferð. Ekki er æskilegt
að vera í sól 4– 6 vikur fyrir og allt að 3– 6
mánuði eftir meðferð með PhotoDerm®
Vasculight™.

Er eitthvað sem getur haft áhrif á árangur
meðferðar?

  Ákveðnir lífshættir s.s. reykingar, hreyfing-
arleysi, og lélegt næringarlegt ástand líkamans
getur haft áhrif á að árangur náist eða að hann
komi seinna í ljós.

Eru einhverjar frábendingar?

  Sjúklingar sem eru á blóðþynningu eða eru
með illkynja sjúkdóma skulu ekki undirgang-
ast meðferð. Einnig sjúklingar sem eru mjög
brúnir eða sérstaklega næmir fyrir sólarljósi.
Aðrar frábendingar eru þungun, sykursýki,
blóðsjúkdómar og inntaka ljósnæmra lyfja.

Hvað annað þarf að hafa í huga?

Takið ekki Asperín, Magnyl eða ljósnæm lyf
í viku fyrir meðferð. Meðferðarsvæði skal
vera hreint og án allra snyrtivara. Sólböð ber
að forðast í minnst 1 mánuð fyrir meðferð og
3– 6 mánuði eftir meðferð. Þeir sem eru að fara
í háreyðingameðferð skulu ekki raka eða
klippa meðferðarsvæðið 1– 2 dögum fyrir
meðferð.

 

Um okkur Spurt og svarað Fyrir og eftir Ráðgjöf

 


Sími: 563-1070 • Vaktsími: 862-4077 • Fax: 563-1088
Domus Medica • 6.hæð • Egilsgötu 3  •  101 Reykjavík
ll@laserlaekning.is