www.laser-laekning.is
Um Laser-lækningu Spurningar og svör Persónuleg ráðgjof
Um Laser-lækninguLitabreytingar og húðflúr (fyrir og eftir myndir)

Fyrir og eftir : Endurnýjun húðarinnar


Fyrir og efti : Litbreyting og húðflúrFyrir og efti : Æðaslit, ör og valbráFyrir og efti : Háreyðing

  

Endurnýjun húðarinnar.

Með árunum fækkar þeim prótein þráðum í undirlagi
húðarinnar sem gera hana sterka (collagen) og teygjanlega
(elastin). Eftir það verður hún grófari áferðar, byrjar
að slappast og síga og línur/hrukkur myndast. Aðrir
þættir hafa einnig áhrif á öldrun húðarinnar s.s. sólarljós,
streita, mengun, reykingar o.fl.

Við sem vinnum við ljós-geisla meðferð höfum tekið eftir
því hvernig húðin breytist - ekki bara hverfur æðaslit og
litabreytingar við meðferð - heldur og dregur hún sig
saman og yfirborðið verður fylltara, sléttara og mýkra.

Færustu læknar í laser lækningum - sem hafa allt að 20
ára reynslu - hafa s.l. 5 ár verið að þróa nýja meðferð
sem grundvallast á þessum athugunum.

Þeir mynduðu tilraunahópa sem fengu meðferð með 3ja
vikna millibili - alls 4-6 skipti. Í byrjun voru tekin húðsýni
til viðmiðunar við sýni sem tekin voru einum mánuði eftir
fyrstu meðferð og allt að einu og hálfu ári seinna, eftir að
meðferð lauk.

Niðurstöður úr húðsýnum voru að nýir collagen og elastin
þræðir byrjuðu strax að myndast í undirlagi húðarinnar
eftir fyrstu meðferð og hélst þetta ástand stöðugt allt að
einu og hálfu ári eftir að meðferð lauk. 80% árangur var
þá enn til staðar.

Úr rannsókn Dr. P.Bitter:

Húðsýni - fyrir meðferð - sýnir skemmdir í húð af
völdum sólar.

Húðsýni - einum mánuði eftir 5. meðferð - sýnir
nýmyndun á collageni.

Úr rannsókn Dr. D.J.Goldberg:

Húðskemmdir af völdum sólar - sýni tekið fyrir meðferð.

Þykknun húðar og nýmyndun á collageni ½ ári eftir 4
meðferðir.

Húðin þykknar, verður fylltari, áferðafallegri og samlitari
vegna aukinnar frumuskiptingar og betra blóðstreymis
auk þess sem meðferð hefur áhrif á sýru- og rakastig þar
sem aukning verður á hyloranic sýru sem er hinn náttúrulegi
rakagjafi húðarinnar og gefur henni mýkt.

Myndir fyrir og eftir meðferð:

Litabreyting á handabökum - eftir 2 meðferðir


Roði á bringu af völdum sólar - eftir 4 meðferðir


Hrukkur á byrjunarstigi I° og II° - eftir 5 meðferðir


Æðaslit og roði í andliti - eftir 3 meðferðir


Litabreyting í húð af völdum sólar - eftir 4 meðferðir

Hverjum gagnast slík meðferð?

- þeim sem hafa æðaslit
- þeim sem hafa litabreytingar t.d. sólarbletti
- þeim sem hafa fínar hrukkur á byrjunarstigi - I°og II°
- þeim sem hafa lit- og líflausa húð
- þeim sem hafa grófa, opna húð
- þeim sem hafa byrjandi einkenni slapprar og teygðrar húðar

Hvernig fer meðferð fram?

Farið er yfir allt meðferðarsvæðið með ljósgeisla. Sú meðferð
tekur um ½ til 1 klst. Meðferðir eru alls 4-6 skipti með 3ja
vikna millibili. Athugið! Þetta getur verið rúmlega þriggja
mánaða ferli!

Eru einhverjar aukaverkanir?

Þær eru litlar sem engar og ætti sjúklingur að geta snúið til sinna fyrri starfa að meðferð lokinni. Ef eitthvað er, þá er það helst að sjúkingum finnist sem þeir hafa verið úti í sól - þ.e. finna hita og roða í húð. Minna en 2% sjúklinga fær mar eða þrota eftir meðferð.

Eftirlit er 2-3 mánuðum eftir lok meðferðar.

 

Um okkur Spurt og svarað Fyrir og eftir Ráðgjöf

 


Sími: 563-1070 • Vaktsími: 862-4077 • Fax: 563-1088
Domus Medica • 6.hæð • Egilsgötu 3  •  101 Reykjavík
ll@laserlaekning.is